Við hjá Mýranauti seljum aðeins fyrsta flokks ungnautakjöt. Gripunum er slátrað í Sláturhúsinu á Hellu sem sér um að úrbeina og sérpakka kjötinu í neytendaumbúðir að óskum viðskiptavina okkar.
Í 1/8 af skrokk eru um 20 kg af kjöti. Þar af er rúmlega helmingurinn hakkað kjöt og restin steikur og gúllas. Val er um að fá snitsel úr klumpnum og/eða flatsteikinni og hamborgara úr hluta af hakkinu.
Í hverjum pakka eru eftirfarandi steikur sem allar eru merktar með nafni og þyngd:
Uppselt i bili, verður aftur til í lok maí.
Í ¼ af skrokk er 40–42 kg af kjöti. Í 1/2 skrokk er 80 – 90 kg af kjöti. Þar af er rúmlega helmingurinn hakkað kjöt og restin steikur og gúllas. Val er um að fá snitsel úr klumpnum og/eða flatsteikinni og hamborgara úr hluta af hakkinu.
Í hverjum pakka eru eftirfarandi steikur sem allar eru merktar með nafni og þyngd:
Uppselt í bili, verður aftur til í lok maí.
Það er hægt að fá hálfa eða heila skrokka á beini ef maður vill úrbeina sjálfur.
Viðskiptavinir okkar ákveða sjálfir það magn af hakki og gúllasi sem fer í hverja pakkningu. Þú velur stærðina á pakkningunni sem hentar þér á pöntunaforminu.
Algengasta magn í hverja pakkningu er 500 gr en það fer að sjálfsögðu eftir fjölskyldustærð.
Einnig er hægt að fá hamborgara gegn vægu aukagjaldi 32.- kr/stk, þeir eru 115 gr að þyngd og er pakkað 5 saman í pakka.
Stóri fjölskyldupakkinn eru 10 kg samtals.
Litli fjölskyldupakkinn eru 8 kg samtals.
Íslensk náttúra býður bestu skilyrði til nautgriparæktar. Við nautgriparæktun Mýranauts eru engin aukaefni notuð eða sýklalyf. Nautgripirnir eru aldir á mólk frá kúnni, grasi sem grær á túninu heima og síðustu mánuðina einnig á byggi.
Kalda loftslagið okkar á Íslandi gerir það að verkum að fitusprenging kjötsins verður afbragðsgóð, fullkomið fyrir eldun hvort sem er til steikingar eða grillun.
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Ut elit tellus, luctus nec ullamcorper mattis, pulvinar dapibus leo.
Mýranaut ehf | Leirulæk 311 Borgarnesi | Netfang myranaut(hjá)myranaut.is | Sími: 868-7204
© 2023 Vefsíðugerð: webdew.is