Við hjá Mýranauti seljum aðeins fyrsta flokks ungnautakjöt. Gripunum er slátrað í Sláturhúsinu á Hellu sem sér um að úrbeina og sérpakka kjötinu í neytendaumbúðir að óskum viðskiptavina okkar.
Í 1/8 af skrokk er 20 – 22 kg af kjöti. Þar af er rúmlega helmingurinn hakkað kjöt og restin steikur og gúllas. Einnig er hægt að fá snitsel úr klumpnum og/eða flatsteikinni og hamborgara úr hluta af hakkinu.
Í hverjum pakka eru eftirfarandi steikur sem allar eru merktar með nafni og þyngd:
Í ¼ af skrokk er 40–45 kg af kjöti. Í 1/2 skrokk er 80 – 90 kg af kjöti. Þar af er rúmlega helmingurinn hakkað kjöt og restin steikur og gúllas. Einnig er hægt að fá snitsel úr klumpnum og/eða flatsteikinni og hamborgara úr hluta af hakkinu.
Í hverjum pakka eru eftirfarandi steikur sem allar eru merktar með nafni og þyngd:
Það er hægt að fá hálfa eða heila skrokka á beini ef maður vill úrbeina sjálfur.
Viðskiptavinir okkar ákveða sjálfir það magn af hakki og gúllasi sem fer í hverja pakkningu. Þú velur stærðina á pakkningunni sem hentar þér á pöntunaforminu.
Algengasta magn í hverja pakkningu er 500 gr en það fer að sjálfsögðu eftir fjölskyldustærð.
Einnig er hægt að fá hamborgara gegn vægu aukagjaldi 32.- kr/stk, þeir eru 115 gr að þyngd og er pakkað 5 saman í pakka.
Stóri fjölskyldupakkinn eru 10 kg samtals.
Litli fjölskyldupakkinn eru 8 kg samtals.
Íslensk náttúra býður bestu skilyrði til nautgriparæktar. Við nautgriparæktun Mýranauts eru engin aukaefni notuð eða sýklalyf. Nautgripirnir eru aldir á mólk frá kúnni, grasi sem grær á túninu heima og síðustu mánuðina einnig á byggi.
Kalda loftslagið okkar á Íslandi gerir það að verkum að fitusprenging kjötsins verður afbragðsgóð, fullkomið fyrir eldun hvort sem er til steikingar eða grillun.
Mýranaut ehf | Leirulæk 311 Borgarnesi | Netfang myranaut(hjá)myranaut.is | Sími: 868-7204
© 2023 Vefsíðugerð: webdew.is